Beint í efni
Styrkleikar - blöðrur

Styrk­leik­arn­ir á Ísa­firði

Krabbameinsfélagið Sigurvon og Krabbameinsfélag Íslands standa fyrir Styrkleikum í fyrsta sinn á Ísafirði laugardaginn 26. september kl. 12:00 - 21:00 við íþróttahúsið Torfnesi.

Styrkleikarnir eru einstakur og fjölskylduvænn viðburður þar sem þátttakendur skiptast á að ganga fyrir fram ákveðna leið, hver á sínum hraða, í fyrir fram ákveðinn tíma.

Styrkleikarnir eru táknræn áminning um mikilvægi þess að sýna stuðning og samstöðu í verki og minna á að enginn þarf að takast á við krabbamein einn.

Yfir daginn verður boðið upp á fjölskyldudagskrá sem auglýst verður þegar nær dregur.Klukkan 20:00 hvetjum við alla til að koma saman við íþróttahúsið Torfnesi og taka þátt í lokahring Styrkleikanna. Að göngunni lokinni verður ljósastund þar sem við leyfum okkur að vera þakklát fyrir þá sem við höfum fengið að hafa hjá okkur og minnumst þeirra sem við höfum misst.