Skagafjörður - Blátt boð
Krabbameinsfélag Skagafjarðar stendur fyrir Bláu boði að Löngumýri 28 apríl.
Gestir eru boðnir velkomnir með bláum drykk og njóta ilmandi kótiletta sem starfsfólk Löngumýrar hefur tilreitt, með góðum tíma til að matast og spjalla saman. Að vanda er einnig boðið upp á menningardagskrá þar sem listamenn úr héraði flytja söng og talað mál. Að þessu sinni koma fram Helga Rós Indriðadóttir, með Rögnvaldi Valbergssyni sem meðleikara, og Gísli Rúnar Konráðsson.
Helga Rós er söngkona frá Hvíteyrum í Lýtingsstaðahreppi sem stundaði söngnám erlendis og starfaði um árabil við óperuhús í Þýskalandi. Heim komin hefur hún stjórnað kórum, sungið með kirkjukór og kennir nú píanóleik og söng við Tónlistarskóla Skagafjarðar. Rögnvaldur er upprunninn úr Fljótum en hefur lengi búið á Sauðárkróki, kennt við Tónlistarskólann, starfað sem organisti Sauðárkrókskirkju og verið eftirsóttur undirleikari í héraði. Gísli Rúnar er kennari að mennt, ættaður úr Blönduhlíð og uppalinn á Frostastöðum, en hefur snúið aftur heim eftir kennslu bæði norðanlands og sunnan. Hann er söngmaður með Karlakórnum Heimi og hagyrðingur sem margir hafa notið við ýmis tækifæri.
