Beint í efni
Jóga Nidra

Reyð­ar­fjörð­ur - Jóga Nidra

Krabbameinsfélag Austfjarða býður krabbameinsgreindum og aðstandendum í jóga nidra, djúpslökun og endurnæringu.

Sólveig Friðriksdóttir leiðir Jóa Nidra sem er róleg og djúp slökun sem fer fram í liggjandi stöðu og hentar því vel óháð líkamlegri getu.

4 vikna námskeið einu sinni í viku. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 26. ágúst kl. 13 í húsnæði Krabbameinsfélags Austfjarða, Sjávargötu 1 Reyðarfirði.

Gott er að hafa með sér jógadýnu, kodda, teppi og augngrímu eða eitthvað til að leggja yfir augun.

Skráning fer fram á austfirdir@krabb.is og er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Gefðu þér stund til að hægja á, hvíla hugann og endurnæra líkamann.