Fjarnámskeið: Þreytustjórnun
Námskeið um þreytustjórnun þar sem fjallað verður um mögulegar orsakir þreytu og hvað sé til ráða.
Flestir sem glíma við krabbamein finna til þreytu í kjölfar greiningar og eða meðferðar. Námskeiðinu er ætlað að varpa ljósi á þessa þreytu, mögulegar orsakir og hvernig bregðast megi við henni.
Námskeiðið er fjarnámskeið í eitt skipti, miðvikudaginn 2. desember kl. 14:00 – 16:00.
Leiðbeinandi er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur.
Nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.
