Námskeið: Þreytustjórnun
Námskeið um þreytustjórnun þar sem fjallað verður um mögulegar orsakir þreytu og hvað sé til ráða.
Flestir sem glíma við krabbamein finna til þreytu í kjölfar greiningar og eða meðferðar. Námskeiðinu er ætlað að varpa ljósi á þessa þreytu, mögulegar orsakir og hvernig bregðast megi við henni.
Námskeiðið er í eitt skipti, mánudaginn 17. september kl. 13:00 – 15:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
Leiðbeinandi er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur.
Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.