Beint í efni
Stuðningur 2

Nám­skeið: Seigla og bjargráð (1/2)

Þátttakendur læra leiðir til að styrkja og efla seiglu og bjargráð með aðferðum jákvæðrar sálfræði og HAM (hugrænnar atferlismeðferðar).

Þegar við erum að takast á við þær áskoranir sem fylgja krabbameinsgreiningu, krabbameinsmeðferð eða eftirfylgni, er gott að geta gripið til hjálplegra bjargráða og verkfæra sem efla seiglu og sjálfstraust.

Námskeiðið er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum.

Námskeiðið er í tveimur hlutum, þriðjudagana 17. og 24. mars kl. 13:00 – 15:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, 1.hæð.

Leiðbeinandi er Katrín Sverrisdóttir, sálfræðingur Krabbameinsfélagsins.

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.

Ekkert þátttökugjald.