Beint í efni
  1. Heim
  2. Stuðningur
  3. Viðburðir og námskeið
  4. Námskeið: Jólakransagerð með Blómstru
Jólakransagerð hjá Krabbameinsfélaginu.

Nám­skeið: Jóla­kransa­gerð með Blómstru

Gerðu þinn eigin jólakrans úr lifandi greni.

Höfum það huggulegt í aðdraganda jólanna. Komum saman, búum til jólakrans úr lifandi efnivið, hlustum á jólalög, drekkum heitt súkkulaði og borðum smákökur.

Námskeiðið er fyrir þau sem hafa fengið krabbamein og aðstandendur þeirra.

Frjálst er að taka með eigið efni úr náttúrunni eða skraut. Ef þú átt töng til að vinna með þá máttu endilega taka hana með. 

Námskeiðið verður haldið þriðjudaginn 24. nóvember, kl. 13:00-16:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8, 4. hæð. Þátttökugjald er kr. 2.000 og innifalið er efni í einn krans. Greitt er fyrir þátttöku á staðnum.

Leiðbeinandi er Erla Ósk Sævarsdóttir hjá blómaverkstæðinu Blómstra.

Skráning og nánari upplýsingar á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.