Beint í efni
Innkirtlameðferð

Nám­skeið fyr­ir kon­ur á inn­kirtla­með­ferð eft­ir brjósta­krabba­mein 1/2

Við bjóðum upp á námskeið í maí fyrir konur sem eru á innkirtlameðferð (einnig stundum kölluð andhormónameðferð eða andestrógenmeðferð) eftir brjóstakrabbamein og vilja fræðast um lyfin, mögulegar aukaverkanir og bjargráð.

Námskeiðið er tvö skipti, 4. maí og 11. maí, kl 17-19.

  • Þann 4. maí verða Ólöf Kristjana Bjarnadóttir krabbameinslæknir og Kristín Sigurðardóttir sérfræðingur í hjúkrun með fræðslu. Þær munu fjalla um lyfin, hvers vegna þau eru gefin, hverjir fá þau og mögulegar aukaverkanir auk þess sem gefinn verður tími fyrir spurningar og umræður.
    Léttar veitingar verða í boði í lok námskeiðs.
  • Þann 11. maí munu Lóa Björk Ólafsdóttir og Vigdís Guðmundsdóttir, sem báðar eru hjúkrunarfræðingar og starfa hjá Krabbameinsfélaginu, fjalla um bjargráð og gagnlegar leiðir. Fjallað verður sérstaklega um þau jákvæðu áhrif sem slökun og hugleiðsla hafa á heilann og taugakerfið og nokkrar æfingar kenndar.
    Léttar veitingar verða í boði í lok námskeiðs.

Umsjón með námskeiðinu hafa Lóa Björk Ólafsdóttir og Vigdís Guðmundsdóttir.

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.