Beint í efni
Bjargráð við kvíða

Nám­skeið: Bjargráð við kvíða (1/2)

Hvernig má koma auga á streituviðbrögð og langvarandi kvíða? Hagnýt bjargráð til að takast á við kvíða og streitu í daglegu lífi.

Flestir upplifa kvíða á einhverjum tímapunkti í tengslum við krabbameinsgreiningu,  krabbameinsmeðferð eða eftirfylgni. Kvíði er í sjálfu sér ekki hættulegur, en honum geta fylgt ýmis óþægileg einkenni. Námskeiðið er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum.  

Námskeiðið er í tveimur hlutum, þriðjudagana 13. og 20. janúar kl. 13:00 – 14:30 í húsnæði Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8. 

Leiðbeinandi er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krabbameinsfélagsins. 

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.