Málþing: Eru krabbameinsforvarnir sveitarstjórnarmál?
Nú styttist í sveitarstjórnarkosningar. Krabbameinsfélagið hefur spurt framboð til sveitarstjórna um afstöðu þeirra til ýmissa þátta sem geta dregið úr krabbameinsáhættu.
Félagið hefur líka spurt fólk hér á landi um afstöðu þess til heilsueflandi aðgerða stjórnvalda. Á málþingi Krabbameinsfélagsins laugardaginn 9. maí ræðum við þessi mál en einnig um lögbundið hlutverk sveitarfélaga, fræðumst um heilsueflandi samfélög og nýjustu stefnu og strauma í krabbameinsforvörnum.
Málþingið hefst kl. 10:00 og fer fram í húsnæði félagsins, Skógarhlíð 8 4. hæð. Einnig verður hægt að fylgjast með útsendingu í streymisveitu Krabbameinsfélagsins.
Dagskrá:
- Lýðheilsa í ljósi lögbundins hlutverks sveitarfélaga – Helga María Pálsdóttir, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Heilsueflandi samfélög – Gígja Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá embætti landlæknis
- Krabbameinsforvarnir – svo miklu meira en bara fræðsla – Sigrún Elva Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu
- Samstarf í heimabyggð, öllum til góðs - Hrefna Eyþórsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Austfjarða
- Spánnýjar niðurstöður um afstöðu framboða í sveitarstjórnarkosningum til heilsueflandi lýðheilsuaðgerða – Ása Sigríður Þórisdóttir, kynningarstjóri Krabbameinsfélagsins
Fundarstjóri: Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins
