Kraftur - Danssmiðja Krafts og R.A.A.F.
Danssmiðjur fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Verkefnið er hluti af Reykjavík Dance Festival, sem er í ár tileinkað tilfinningum. Smiðjurnar eiga að skapa rými þar sem við getum komið saman, hlustað á hvert annað, tengst eigin líkama og hvert öðru og gefið tilfinningunum rými til að vera. Þátttaka er á forsendum hvers og eins og dansinn verður til út frá samtali, trausti og sameiginlegri sköpun þar sem ólíkar raddir, hreyfingar, tilfinningar og reynsla fléttast saman.
Skráning hér: https://www.abler.io/shop/kraftur25%2F1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NjkwMzg%3D
