Jólabókastund
Við hjá Krabbameinsfélagi Íslands bjóðum öll velkomin í notalega samveru í aðdraganda jóla.
Við hjá Krabbameinsfélagi Íslands bjóðum öll velkomin í notalega samveru í aðdraganda jóla þar sem rithöfundarnir: Guðný Sara Birgisdóttir (Brá fer á stjá), Einar Kárason (Sjá dagar koma) og Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir (Piparmeyjar - Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi) lesa vel valin brot úr nýútgefnum bókum sínum.
Boðið verður uppá heitt súkkulaði og smákökur.
Jólabókastundin verður miðvikudaginn 10. desember, kl: 12:00 – 13:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8,1. hæð.
Skráning er óþörf og aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
