Jóga Nidra
Opnir tímar í Jóga Nidra, djúpslökun og hugleiðslu.
Jóga Nidra er öflug leið til að kyrra hugann, losa um streitu og auka vellíðan. Iðkunin fer fram í liggjandi slökunarstöðu en hljóðfæri koma einnig við sögu til að dýpka upplifunina. Ávinningurinn getur verið jákvæð og víðtæk áhrif á líkamlega og andlega líðan.
Tímarnir eru ætlaðir þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum.
Leiðbeinendur eru Lóa Björk og gestakennarar.
Í júlí verða tímar þriðjudagana 7., 14., og 21. kl. 10:50 - 12:00. Engir tímar eru á fimmtudögum í júlí.
Ekkert þátttökugjald en nauðsynlegt er að skrá sig.
Nánari upplýsingar: radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.
