Húsavík - Viðtöl hjá ráðgjafa KÍ
Ráðgjafi frá Krabbameinsfélaginu verður á Húsavík, fimmtudaginn 12. febrúar.
Viðtölin verða í Húsnæði Framsýn, Garðarsbraut 26 og eru í boði bæði fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein, aðstandendur og syrgjendur. Þjónustan er öllum opin, endurgjaldslaust.
Við hvetjum einstaklinga í nágrannasveitarfélögunum til að nýta sér einnig þjónustuna.
Til að bóka viðtal er hægt að hringja í félagið í síma 461-1470 eða með því að senda póst á kaon@krabb.is
