Beint í efni
Maraþon 2024

Hlaup­um sam­an fyr­ir Krabba­meins­fé­lag­ið í Reykja­vík­urmara­þoni Ís­lands­banka 2026

Taktu daginn frá! Hlaupum saman í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fram fer laugardag, 22. ágúst 2026. 

Það er alltaf einstök stemming að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Líkt og undanfarin ár gefst hlaupurum kostur á að hlaupa til styrktar Krabbameinsfélaginu og fer áheitasöfnun fram á hlaupastyrkur.is.

Við erum afar þakklát öllum þeim sem hafa í gegnum árin hlaupið fyrir Krabbameinsfélagið og þannig lagt sitt af mörkum til starfseminnar sem ávallt miðar að því að færri fái krabbamein, feiri læknist, lif lengi og njóti lífsins með og eftir krabbamein.  

Við hjá Krabbameinsfélaginu einsetjum okkar að vera í fararbroddi í baráttunni gegn krabbameinum og beitum okkur fyrir réttindum og hagsmunum þeirra sem greinast með krabbamein og aðstandenda þeirra. 

Öll starfsemi félagsins byggir á stuðningi fólks og fyrirtækja í landinu. Ykkar stuðningur gerir okkur kleift að veita ókeypis stuðning og sinnum rannsóknum, hagsmunagæslu, fræðslu og forvörnum, því lífið liggur við.

Svona var stemmingin í fyrra