Heilnæm útivist og fræðsla - haust 2026
Vikulegar göngu- og fróðleiksferðir fyrir fólk sem einhvern tímann hefur greinst með krabbamein og aðstandendur.
Heilnæm útivist - andleg og líkamleg heilsubót!
Í samstarfi við Ferðafélag Íslands heldur Krabbameinsfélagið námskeiðið Heilnæm útivist og fræðsla. Vikulegar, léttar göngur sem fléttaðar eru ýmiskonar fróðleik um náttúru og sögu.
Markmiðið er að njóta hollrar útivistar, fræðslu og félagsskapar við fólk sem deilir reynsluheimi og stuðla þannig að betri andlegri og líkamlegri heilsu fólks sem tekst á við afleiðingar krabbameins og meðferðar vegna þess.
Umsjónarmenn og fararstjórar eru sem fyrr þau Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir frá Ferðafélagi Íslands, þeim til aðstoðar og fulltingis er starfsmaður Krabbameinsfélagsins.
Námskeiðið hefst 12. september og fer fram alla laugardaga kl. 10-12 til og með 12. desember.
Fyrirkomulag og kostnaður
Gengið er að langmestu leyti á sléttu landi og ættu flestir að geta ráðið við göngurnar sem eru fléttaðar ýmiskonar áhugaverðum fróðleik um náttúru og sögu.
- Gengnar eru mismunandi leiðir á höfuðborgarsvæðinu eða í nágrenni þess.
- Gengið er alla laugardaga frá 12. sept– 12.des, alls 14 skipti.
- Lagt er upp klukkan 10:00 og vara göngurnar að jafnaði í um tvo klukkutíma.
Hægt er að mæta í stakt skipti endurgjaldslaust til að prófa hvort göngurnar henti. Þátttökugjald á námskeiðinu fyrir hvern einstakling er 5.000 kr (samanlagt fyrir allar göngurnar). Þátttökugjald er greitt eftir að göngurnar hefjast, tilkynning verður send þátttakendum.
Áætlun um gönguleiðir verður kynnt síðar.
