Beint í efni
Hvíld

Nám­skeið: Heil­inn og ham­ingj­an; fræðsla og Jóga Nidra (1/4)

Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig áföll og langvarandi streita geta mótað heila og taugakerfi okkar.

Þessi nálgun útskýrir vel áhrifin á líðan okkar en einnig viðbrögð við ýmsum aðstæðum í daglegu lífi.  

Námskeiðið er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein en markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti aukið frið og vellíðan í daglegu lífi. Kynntar verða ýmsar leiðir til að styrkja taugakerfið, breyta gömlum mynstrum og auka vellíðan með nokkuð einföldum aðferðum.

Hver tími endar á Jóga Nidra slökun og hljóðheilun þar sem legið er á mjúkum svampdýnum eða í hægindastól.

Námskeiðið er í fjögur skipti, þriðjudagana  14. október til 4. nóvember, kl. 13:00 – 15:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8. 

Leiðbeinandi: Lóa Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur.

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.