Gott útlit 25. ágúst
Snyrtinámskeið ætlað konum sem eru í krabbameinsmeðferð. Farið er í grundvallaratriði í umhirðu húðar og veittar leiðbeiningar um förðun.
Námskeiðið er eitt skipti og er haldið síðasta þriðjudag hvers mánaðar kl. 10:00 – 12:00, frá ágúst til nóvember. Það fer fram í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, 1. hæð.
Leiðbeinandi er Kristjana Rúnarsdóttir, sérfræðingur frá Lancome.
Ekkert þátttökugjald.
Vinsamlega athugið: Ef fullbókað er á námskeiðið getur þú sent okkur tölvupóst á netfangið radgjof@krabb.is eða hringt í síma 800 4040 og skráð þig á biðlista eða fengið nánari upplýsingar.
