Beint í efni
Gott útlit_námskeið.

Gott út­lit

Snyrtinámskeið ætlað konum sem eru í krabbameinsmeðferð. Farið er í grundvallaratriði í umhirðu húðar og veittar leiðbeiningar um förðun.

Námskeiðið er eitt skipti og er haldið síðasta fimmtudag hvers mánaðar kl. 10:00 – 12:00, frá ágúst til nóvember. Það fer fram í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, 1. hæð.

Leiðbeinandi er Kristjana Rúnarsdóttir, sérfræðingur frá Lancome.  

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald. 

Ráð­gjöf og stuðn­ing­ur þér að kostn­að­ar­lausu

Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku og pólsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.