Beint í efni
Sumargrill krafts

Fjöl­skyldu­kraft­ur - Sum­ar­grill

Kraftur heldur árlegt Sumargrill í Hlöðunni Gufunesbæ, fimmtudaginn 25. júní kl. 17! 

Sumargrillið er vettvangur fyrir félagsfólk og fjölskyldur þeirra að koma saman og gleyma sér í gleðinni. 

Hægt verður að fara í skemmtilega útileiki, andlitsmálningu og blöðrudýr, veitingar frá Hamborgarabúllu Tómasar, Ísbílnum og Ölgerðinni verða á boðstolnum auk þess sem Íþróttaálfurinn og VÆB bræður stíga á svið! 

Hlökkum til að sjá ykkur í sólskinsskapi <3