Beint í efni
Bætt rútína, betri svefn, betri líðan

Fjar­nám­skeið: Bætt rú­t­ína, betri svefn, betri líð­an (3/4)

Fjögurra vikna námskeið þar sem lögð er áhersla á að bæta svefnrútínu, stuðla að góðum svefnvenjum og þar með betri svefni og líðan.

Farið verður yfir áhrif streitu og ýmissa lífsstílstengda þátta á svefn og líðan.

Þátttakendur fá verkfæri í hverri viku sem stuðla að því að bæta rútínu og svefn. Einnig verður lögð áhersla á áhrif streitu og  lífsstilstengda þátta á svefn og vellíðan. 

Námskeiðið er vikulega í fjögur skipti, miðvikudagana 30. september og 7., 14. og 21. október kl. 15:00 - 16:00 og er fjarnámskeið. Ekkert þátttökugjald.

Leiðbeinandi er Erla Björnsdóttir, sálfræðingur hjá Betri svefni.

Nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.

Umsagnir um námskeiðið: 

„Ég mun mæla með því að fólk nýti sér þetta námskeið ef svefnvandamál eru fyrir hendi , ég hætti að nota útvarp og skjá nokkru fyrir svefn og fór fram í stað þess að liggja andvaka og það virkaði vel".

„Var gott að koma rútínu á svefn vakna á sama tíma og sofna á sama tíma".