Eskifjörður - Aðventukvöld Krabbameinsfélags Austfjarða
Árlegt aðventukvöld Krabbameinsfélags Austfjarða
verður haldið í Tónlistarmiðstöð Austurlands, Eskifirði,
fimmtudaginn 26. nóvember kl 20:00
Dr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir flytur erindi um sorgina og jólin. Guðlaug er sjúkrahúsprestur á líknardeild Landspítala í Kópavogi, hefur áratuga reynslu og menntun á sviði sálgæslu og líknarmeðferðar.
Lifandi jólatónlist með Ísabellu, Amelíu og Óskari.
Ína Dagbjörg Gísladóttir les upp úr bókinni Urðarmáni og Leifur Helgi Konráðsson les upp úr bókinni Þankar úr hæðum ofar
Notaleg samvera og léttar veitingar.
Hvetjum félagsmenn, velunnara og aðra til að koma og njóta með okkur.
Öll velkomin
