Austurland - Viðtöl hjá ráðgjafa KÍ
Ráðgjafi frá Krabbameinsfélaginu verður á Egilsstöðum og Reyðarfirði dagana 20. - 22. apríl.
Ráðgjafi Krabbameinsfélagsins býður upp á stuðningsviðtöl eða djúpslökun á Egilsstöðum og Reyðarfirði.
Þjónustan er í boði fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein, aðstandendur og syrgjendur og er öllum opin, endurgjaldslaust.
Til að panta tíma er hægt að senda beiðni á radgjof@krabb.is eða hringja í síma 800 4040.
