Beint í efni
Stuðningur 2

Ak­ur­eyri - Jafn­ingja­stuðn­ing­ur fyr­ir karl­menn

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis býður upp á jafningastuðning fyrir karlmenn sem eru með eða hafa lokið meðferð á seinustu mánuðum.

Hópurinn hittist annan hvern þriðjudag á skrifstofu KAON, Glerárgötu 24, kl. 16:15-17:45.

Tækifæri fyrir karlmenn til að hittast og spjalla. Mjög vel tekið á móti nýjum í hópinn.

Umsjónaraðilar: Snæbjörn Ómar Guðjónsson sérfræðingur í geðhjúkrun og Marta Kristín verkefnastjóri KAON.

Þeir sem hafa áhuga á að mæta í hópinn þurfa að hafa samband við skrifstofu félagsins með því að senda póst á kaon@krabb.is eða hringja í síma 461-1470.

Dagsetningar

13. og 27. janúar

10. og 24. febrúar

10. og 24. mars

21. apríl

5. maí