Aðventukertagerð - Hjartastaður
Krabbameinsfélagið býður upp á notalega stund í aðdraganda aðventu. Þátttakendur skreyta aðventukerti undir leiðsögn.
Þátttökugjald er kr. 2.000. Fjögur kerti og allur efniviður til málunar og skreytinga eru innifalin. Takmörkuð pláss í boði.
Námskeiðið er eitt skipti, mánudaginn 16. nóvember kl. 14:00 - 16:00.
Leiðbeinandi er Guðrún Eiríksdóttir, stofnandi Hjartastaðar.
Fyrir nánari upplýsingar eða skráningu á biðlista er hægt að senda tölvupóst á netfangið radgjof@krabb.is eða hafa samband í síma 800 4040.
