Beint í efni
  1. Heim
  2. Stuðningur
  3. Viðburðir og námskeið
  4. Aðventukertagerð - Hjartastaður
Aðventukerti frá Hjartastað.

Að­ventu­kerta­gerð - Hjarta­stað­ur

Krabbameinsfélagið býður upp á notalega stund í aðdraganda aðventu. Þátttakendur skreyta aðventukerti undir leiðsögn.

Þátttökugjald er kr. 2.000. Fjögur kerti og allur efniviður til málunar og skreytinga eru innifalin. Takmörkuð pláss í boði.

Námskeiðið er eitt skipti, mánudaginn 16. nóvember kl. 14:00 - 16:00.

Leiðbeinandi er Guðrún Eiríksdóttir, stofnandi Hjartastaðar.

Fyrir nánari upplýsingar eða skráningu á biðlista er hægt að senda tölvupóst á netfangið radgjof@krabb.is eða hafa samband í síma 800 4040.