Líðan og bjargráð
Að greinast með krabbamein hefur oft djúpstæð áhrif á líðan. Flestir upplifa sterkar og margvíslegar tilfinningar sem geta reynt á, ekki aðeins við greiningu heldur einnig meðan á meðferð stendur og eftir að henni lýkur.
Margt er þó hægt að gera til bæta líðan.
Við greiningu
Það er flestum mikið áfall að greinast með krabbamein og algengt að fólk upplifi sig í lausu lofti. Óvisan um það sem tekur við er erfið og getur valdið kvíða. Yfirleitt finnur fólk fyrir vissum létti þegar rannsóknarniðurstöður liggja fyrir og meðferðaráætlun hefur verið sett fram. Margir lýsa því þannig að þá sé aftur komið fast land undir fæturna þó eðlilegt sé að upplifa áfram sveiflur í andlegri líðan í ferlinu sem tekur við.
Meðan á meðferð stendur
Krabbameinsmeðferðir hafa oft í för með sér ýmiskonar líkamleg áhrif, svo sem þreytu, verki og aðrar aukaverkanir sem geta raskað daglegu lífi en áhrifin á andlega líðan geta einnig verið umtalsverð.
Sveiflukennd andleg líðan er eðlileg og algengt að fólk upplifi kvíða, vanmátt, ótta og aðrar krefjandi tilfinningar. Breytingar á þreki og úthaldi, hlutverkum og samskiptum er meðal þess sem getur haft áhrif á sjálfsmynd og tilfinningu fyrir að hafa stjórn. Einnig geta samskipti við aðra í þessum breyttu aðstæðum valdið spennu eða vanlíðan.
Að lokinni meðferð
Margir upplifa blendnar tilfinningar þegar meðferð lýkur. Margir finna fyrir óöryggi þegar beinni meðferð við krabbameininu lýkur því þá breytist eftirlit og samskipti við heilbrigðisstarfsfólkið. Léttir getur einnig verið blandinn kvíða gagnvart framtíðinni og það getur tekið tíma að ná nýju jafnvægi, bæði líkamlega og andlega.
Hér má finna upplýsingar um algengar tilfinningar og bjargráð sem geta stuðlað að betri líðan — bæði beint í kjölfar greiningar, meðan á meðferð stendur og áfram veginn eftir að henni lýkur.


