Yfir 300 þúsund heimsóknir á nýjan matarvef
Gott og einfalt er nýr matarvefur sem gerir hollar uppskriftir aðgengilegar öllum. Vefurinn hefur fengið yfir 300 þúsund heimsóknir frá opnun í september 2025 og tæplega 1800 hafa stofnað aðgang.
Vefurinn Gott og einfalt er samstarfsverkefni Krabbameinsfélagsins og SÍBS. Hann hefur þá sérstöðu að allar uppskriftirnar taka mið af ráðleggingum um mataræði frá embætti landlæknis. Markmiðið með honum er að auðvelda fólki að velja og elda hollan mat í daglegu lífi. Til að gera það enn aðgengilegra er hægt að setja upp vikumatseðla á vefnum og fá sjálfvirkan innkaupalista sem hægt er að deila með öðrum á heimilinu.
Traustur vettvangur fyrir girnilegar og hollar uppskriftir
Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir, næringar- og matvælafræðingur hjá Krabbameinsfélaginu, hefur stýrt verkefninu fyrir hönd félagsins. „Hollt mataræði hefur verulegan heilsufarslegan ávinning og getur dregið úr líkum á ýmsum tegundum krabbameina og öðrum lífstílstengdum sjúkdómum,“ segir Birgitta Lind. „Við viljum vera traustur vettvangur fyrir þau sem eru að leita að girnilegum og hollum uppskriftum og skynjum mikla ánægju með framtakið. Reglulega berast okkur skilaboð frá ánægðum notendum sem hafa prófað uppskriftirnar og nýtt sér vikumatseðla og annað efni sem má finna á vefnum.”
Óhætt er að segja að viðtökur við vefnum séu frábærar, en hann hefur fengið yfir 300 þúsund heimsóknir frá því í september og tæplega 1800 hafa stofnað aðgang. Vefurinn er í stöðugri þróun og reglulega bætast við nýjar uppskriftir og fróðleikur, svo það er um að gera að fylgjast vel með. Nú þegar eru yfir 170 uppskriftir úr ýmsum áttum aðgengilegar á vefnum ásamt nytsamlegri fræðslu af ýmsum toga, en til gamans má geta að eftirlætis uppskriftir notenda eru íslensk grænmetissúpa, kjúklingaréttur með brokkolí og mexíkósk skál.
Hvað á að vera í matinn í kvöld?
Gott og einfalt er gott dæmi um að forvarnir byggja ekki eingöngu á fræðslu, heldur einnig á hagnýtum lausnum. Með því að sameina einfaldar uppskriftir, skýrar leiðbeiningar og notendavæna virkni skapar vefurinn umhverfi sem auðveldar okkur að bæta við hollum og næringarríkum kostum um leið og hann léttir okkur lífið og hjálpar okkur að svara hinni endalausu spurningu; hvað á að vera í matinn í kvöld?
Kjúklingaréttur með brokkolí

Íslensk grænmetissúpa

