Vildu vekja athygli á heilsusamlegum lífsstíl (myndir)
Mikill kraftur var í þeim sem lögðu leið sína í æfingastöðina UltraForm til að taka þátt í Skref fyrir lífið um helgina. Hjartans þakkir fyrir framtakið og hamingjuóskir með árangurinn.
Það var líf og fjör í æfingastöðinni UltraForm alla helgina þegar ofuríþróttafólkið Karlotta Ósk Óskarsdóttir og Sigurjón Ernir Sturluson stóðu fyrir viðburðinum Skref fyrir lífið. Á 50 klukkustundum frá föstudagsmorgni til sunnudags hljóp Karlotta samtals 238 kílómetra. Á meðan tók Sigurjón 150 umferðir af kraftmiklum þrekæfingum yfir helgina.

Þau buðu öllum áhugasömum að koma og taka æfingar með Sigurjóni eða hlaupa með Karlottu og það var ánægjulegt að sjá hversu margir tóku þátt. Að þeirra sögn voru skrefin misþung og erfið, en stuðningurinn var ómetanlegur og þau náðu markmiðum sínum og gott betur. „Okkur líður alveg ótrúlega vel og við erum glöð með að vera búin með þetta,“ sögðu þau Karlotta og Sigurjón að þrekvirkinu loknu. „Þetta var alvöru verkefni, alvöru áskorun sem tók í.“



Í færslu um viðburðinn sagði Sigurjón: „Við vildum vekja athygli á heilsu, úthaldi og þrautseigju og hversu langt við getum náð ef við stöndum saman þegar á reynir.“ Eins og við þekkjum hjá Krabbameinsfélaginu skiptir hreyfing miklu máli fyrir andlega og líkamlega heilsu. Það er þó sem betur fer ekki þannig að fjölmarga kílómetra þurfi til að ná fram jákvæðum áhrifum. Öll hreyfing er gagnleg og gott er að miða við 30 mínútur eða lengur, flesta eða alla daga vikunnar. Eða, eins og þau grínuðust sjálf með að þrekvirkinu loknu: „Ekki gera þetta sem við vorum að gera.“
Við þökkum þeim Karlottu og Sigurjóni kærlega fyrir framtakið og eljuna og öllum þeim sem styrktu kærlega fyrir stuðninginn. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem fanga stemninguna.




Myndir: Guðmundur Freyr Jónsson.
