„Verkefni sem allir eru stoltir af“
Hin árlega veiðiferð Kastað til bata fór fram dagana 29. til 31. maí í Langá að Mýrum.
„Þetta er mjög jákvætt fyrir sjálfsmyndina, mjög styrkjandi og eflir mann í batanum á margan hátt,“ segir Elsa Lyng Magnúsdóttir, ein þeirra 16 kvenna sem tóku þátt í ár. Elsa greindist með brjóstakrabbamein fyrir tveimur árum síðan og segir dýrmætt að fá tækifæri til að fara í svona ferð. „Þú kynnist nýjum konum, prófar eitthvað nýtt, tekst á við áskorun og líður vel eftir á. Svo var líka dekrað við okkur og allt var svo hlýlegt og notalegt.“
Kastað til bata verkefnið hóf göngu sína 2010, en það er hugsað sem endurhæfing fyrir konur sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini. Markmiðið með veiðiferðinni er að veita konum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í fallegu umhverfi og njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu.


Sigur að vaða yfir straumþunga á
Elsa hefur lagt stund á veiði og býr að þeirri reynslu, en segist samt hafa lært heilmikið og undirstrikar að ferðin nýtist líka til að læra á breyttar aðstæður. „Eftir svona stóra aðgerð, eins og í mínu tilfelli þar sem brjóstið var fjarlægt og allir eitlarnir úr holhöndinni, þá þarf að læra að beita líkamanum upp á nýtt. Ég þurfti því að læra upp á nýtt að kasta og það skiptir mjög miklu máli að hafa reynslumikla aðila að kenna.“
Hún segir það líka efla sjálfstraustið að læra að vaða. „Eftir svona stórt verkefni er maður kannski aðeins gjarnari á að hlífa sér og upplifir sig aðeins brothættari. Það er sigur að vaða yfir straumþunga á og finna hvers maður er megnugur.“


Konur finni sig í sportinu eftir ferðirnar
Rún Knútsdóttir, stangveiðikona og ein af leiðsögukonum helgarinnar, tekur undir með Elsu. „Stór hluti af veiðinni er að kunna að vaða yfir straumvatn. Sumar voru dálítið stressaðar, en allar drifu sig og voru mjög ánægðar eftir á að hafa látið vaða. Við pössum auðvitað vel upp á allar, krækjum saman höndum og förum rólega. En þetta ýtir konum út fyrir þægindarammann og er eftirminnilegur hluti af ferðinni.“
Rún er að taka þátt sem leiðbeinandi í fjórða sinn og segir fyrir hönd Stangveiðifélags Reykjavíkur að mikil ánægja ríki með verkefnið. „Þetta er verkefni sem öllum þykir vænt um og allir eru stoltir af. Það er gaman að vera með konunum og kynna þær fyrir sportinu og alltaf skemmtileg stemning í hópnum.“ Þá sé sérstaklega ánægjulegt þegar konur finna sig í sportinu eftir ferðirnar. „Okkur þykir alltaf mjög vænt um það þegar konurnar úr Kastað til bata skila sér í kvennastarfið hjá Stangveiðifélaginu.“
Mikil útvera en líka afslöppun
Ferðin er byggð upp þannig að fyrst fá konurnar kastkennslu og eftir það prófa þær að vaða yfir ána. Að því loknu er farið með stangirnar niður að ánni og athugað hvort eitthvað veiðist. Konurnar njóta leiðsagnar frá reynslumiklum leiðbeinendum allan tímann og fá ábendingar um veiðiaðferðir og köst. Seinni daginn fá þær einnig fræðslu um sögu Langár og skoða einn stærsta laxastiga landsins.
Þrátt fyrir mikla útiveru segir Elsa að góður tími hafi einnig gefist til að hvílast og spjalla. „Á föstudagskvöldinu áttum við fallega stund saman þar sem við fórum hringinn og hver sagði frá sinni reynslu. Þar gafst dýrmætur tími til að kynnast betur og deila ráðum.“ Þær nýttu einnig rólegu stundirnar til að prjóna, spjalla og hlusta á fallega tónlist. „Í svona fegurð og kyrrð og ró þá líður öllum vel.“

Enginn staður betri í heiminum
Báðar segjast þær geta mælt heilshugar með ferðinni. „Það er fátt betra heldur en að vera úti við fallega á í fallegu umhverfi með skemmtilegu fólki,“ segir Rún. „Það er enginn staður betri í heiminum heldur en það.“
„Það var tekið alveg rosalega vel á móti okkur og hugsað gríðarlega vel um okkur allan tímann,“ segir Elsa. „Við fengum gjafapoka við komuna og svo var eldað fyrir okkur allan tímann. Það var greinilegt að allir sem komu að verkefninu voru að gera það af heilum hug og ég vil skila miklu þakklæti til Krabbameinsfélagsins og allra sem komu að ferðinni.“
Umsagnir frá fleiri þátttakendum
„Besta helgi mín svoooo lengi… mér fannst ég hafa komið heim endurfædd!“
„Takk fyrir mig, ég mun aldrei gleyma ykkur né þessari helgi .“
„Þetta var yndisleg helgi með ykkur öllum og ég kom endurnærð heim.“


Styrktaraðilar ferðarinnar voru:
- Veiðihornið
- Stangveiðifélag Reykjavíkur
- Garri
- Bananar ehf
- Sky Lagoon
- 66° Norður
- Eucerin Ísland
- Matfugl
- Innnes
Stuðningur styrktaraðila skiptir höfuðmáli til að gera þetta skemmtilega verkefni að veruleika. Við þökkum styrktaraðilum kærlega fyrir sitt framlag.
