Beint í efni

Velj­um fjöl­breytt á grillið og forð­umst að mat­ur­inn brenni

Nú er grilltíminn í hámarki og því vert að minna á að það skiptir máli að forðast að maturinn brenni á grillinu og að fjölmargt er hægt að grilla annað en kjöt.

Þegar kjöt er grillað við mjög háan hita eða þar til það brennur geta myndast efni sem tengjast aukinni krabbameinsáhættu. Þau myndast meðal annars þegar kjöt verður mikið brennt eða þegar fita drýpur niður á glóðina, reykur myndast og sest á matinn. Rannsóknir benda til þess að mikil og langvarandi útsetning fyrir þessum efnum geti aukið líkur á ákveðnum tegundum krabbameina. Því er ráðlagt að forðast að kjöt verði mikið brennt eða kolað.

Sem betur fer er hægt að draga úr myndun þessara efna með einföldum aðferðum:

Veljið fremur magrara kjöt þar sem minni fita lekur niður á grillið og dregur þannig úr logamyndun

  • Grillið við meðalhita frekar en mjög háan hita og forðist að maturinn logi
  • Snúið kjötinu reglulega svo það brenni síður
  • Eldið stærri kjötstykki að hluta við óbeinan hita eða klárið eldunina í ofni ef þarf
  • Notið kjöthitamæli til að tryggja að kjötið sé fulleldað án þess að ofelda það
  • Ef notað er kolagrill er best að bíða þar til kolin eru orðin glóandi og hætt að loga áður en grillað er
  • Hreinsið grillgrindina reglulega til að fjarlægja brunnar matarleifar
  • Ef fitumikill matur er grillaður getur verið gagnlegt að nota grillbakka eða óbeinan hita til að minnka logamyndun

Ef maturinn brennur þrátt fyrir ráðstafanir er best að skera brennda hlutann burt. Á vefnum okkar má nálgast fleiri góð ráð fyrir grillið.

Marinering getur skipt máli

Rannsóknir benda til þess að marinering geti minnkað myndun þessara efna við grillun. Marinering úr jurtaolíu, sítrónusafa eða ediki ásamt kryddjurtum eins og rósmaríni, timíani, oreganó eða hvítlauk er bæði bragðgóð og einföld leið til að undirbúa mat fyrir grillið.

Grillið er ekki bara fyrir kjöt!

Grillið hentar ekki síður fyrir fisk, sjávarfang, grænmeti, baunabuff og ávexti og því er um að gera að prófa sig áfram. Þannig verður máltíðin fjölbreyttari og trefjaríkari auk þess sem almenn, ríkuleg neysla á fæðu úr jurtaríkinu er hluti af heilsusamlegu mataræði sem tengist minni hættu á ýmsum langvinnum sjúkdómum, þar á meðal sumum tegundum krabbameina.

Prófið til dæmis að grilla maís, papriku, kúrbít, sveppi, aspas, hjartasalat, ananas, ferskjur eða vatnsmelónu. Óháð því hvað er á grillinu ætti samt alltaf að forðast að maturinn brenni.

Á Gott og einfalt má finna fjölmargar uppskriftir og hugmyndir að grilluðu grænmeti og ávöxtum.

Heildarmataræðið skiptir mestu máli

Mikilvægt er að muna að það er fyrst og fremst langtímamynstur í mataræði og lífsstíl sem hefur áhrif á heilsuna en ekki ein og ein grillmáltíð. Almennt séð er ráðlegt að takmarka neyslu á rauðu kjöti og neyta sem minnst af unnum kjötvörum, svo sem pylsum og beikoni. Fyllið diskinn sem mest af grænmeti og ávöxtum og veljið oftar fisk eða jurtaafurðir á grillið.