Beint í efni

Vax­andi ný­gengi krabba­meina með­al full­orð­inna und­ir fimm­tugu

Niðurstöður nýrrar rannsóknar sýna þróun í átt að auknu nýgengi krabbameina meðal fullorðinna á aldrinum 20-49 ára.

Krabbamein hjá fullorðnum undir 50 ára aldri (early-onset cancer), eru sjaldgæf. Engu að síður hefur verið greint frá vaxandi nýgengi slíkra krabbameina í mörgum löndum, en nýgengi er fjöldi nýrra tilvika á hverja 100.000 íbúa á ári.  

Nýlega kom út grein í The Lancet Regional Health - Europe um nýgengi krabbameina meðal fólks undir fimmtugu. Rannsóknina leiddi Anna L. V. Johansson frá Karolinska Institutet í samstarfi við aðra vísindamenn stofnunarinnar og Samtök norrænna krabbameinsskráa (ANCR).  Krabbameinsskrá Íslands var meðal þeirra norrænu krabbameinsskráa sem tóku þátt í rannsókninni og lögðu til gögn og sérfræðiþekkingu. 

Meiri aukning á nýgengi krabbameina meðal fólks undir fimmtugu 

Í þessari nýju rannsókn lýsa vísindamenn nýlegri þróun nýgengis 18 algengra krabbameina í sjö löndum; Íslandi, Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Finnlandi, Færeyjum og Grænlandi. Niðurstöðurnar sýna að nýgengi hefur aukist í 12 af 18 krabbameinstegundum meðal fólks á aldrinum 20-49 ára á síðustu 20 árum, samanborið við fólk á aldrinum 50-84 ára.  

Graf af vef NORDCAN sem sýnir aldursstaðlað nýgengi krabbameina meðal fólks á aldrinum 20-49 ára.

Sótt á vef NORDCAN.

Mest var aukning nýgengis í skjaldkirtils-, ristils- og nýrnakrabbameinum, eða meiri en 2,5% á ári. Nýgengi endaþarms-, blöðruhálskirtils- og lifrarkrabbameina jókst einnig um meira en 1% á ári, sem og nýgengi sortuæxla í húð og mergæxla. Hins vegar dró úr nýgengi lungnakrabbameina og krabbameina í eggjastokkum.  

Í sumum krabbameinstegundum var þróunin hjá yngri aldurshópnum  frábrugðin þeirri sem sást hjá eldri aldurshópum. Til dæmis jókst nýgengi ristilkrabbameina um 2,7% á ári hjá fólki á aldrinum 20-49 ára en aðeins um 0,4% hjá fólki á aldrinum 50–84 ára. Sama á við um nýrnakrabbamein þar sem aukningin var 2,7% hjá yngri hópnum samborið við 1,2% hjá þeim eldri. Nýgengi krabbameina í endaþarmi, blöðruhálskirtli, legbol og leghálsi jókst hjá yngri hópnum á sama tíma og það dróst saman hjá eldri hópnum. 

Mismunandi ástæður kunna að liggja að baki 

Niðurstöðurnar sýna viðvarandi mynstur vaxandi nýgengis krabbameina meðal fullorðinna undir fimmtugu. Þótt krabbameinsáhætta sé lítil hjá yngri aldurshópnum samanborið við eldri aldurshópinn er þessi aukning áhyggjuefni, þar sem ástæðurnar að baki þessari þróun eru enn lítt þekktar.  

Gögnin sem notuð voru við rannsóknina innihéldu ekki upplýsingar um útsetningu einstaklinga fyrir áhættuþáttum og því er ekki vitað um undirliggjandi ástæður fyrir þessari þróun. Líklegast er að ólíkir áhættuþættir og betri greiningartækni hafi áhrif fyrir mismunandi krabbamein.  

Vitað er að nýgengi sumra krabbameina, til dæmis skjaldkirtils- og nýrnakrabbameina, kann að skýrast að hluta vegna nýrra og næmari greiningaraðferða. Erfiðara er að skýra aukið nýgengi sumra krabbameina, svo sem ristil- og brjóstakrabbameina, en niðurstöðurnar sýndu meiri aukningu meðal fólks á aldrinum 20-35 ára, þar sem reglubundin skimun hefst almennt ekki fyrr en síðar á ævinni. Krabbameinsgreining snemma á lífsleiðinni getur haft langvarandi afleiðingar og mikilvægt er að greina mismunandi áhættuþætti snemma og auka vitund bæði heilbrigðisstarfsfólks og almennings, sérstaklega þar sem yngri kynslóðir kunna að bera þessa auknu áhættu með sér fram á efri ár. 

Niðurstöðurnar gefa líka tilefni til bjartsýni og benda til þess að tækifæri séu til að draga úr áhættu með forvörnum. Til dæmis sést minnkandi nýgengi lungnakrabbameins hjá yngra fólki, sem samræmist því að reykingar hafa minnkað meðal yngri kynslóða.  

Mikilvægi vandaðrar skráningar og norræns samstarfs 

Norrænt samstarf er sérstaklega mikilvægt í rannsóknum um þróun krabbameina. Skráning krabbameina er mjög vönduð á Norðurlöndum og sameiginlegur gagnagrunnur NORDCAN er því afar verðmætur. Með því að sameina gögn frá fleiri löndum verður gagnasafnið stærra og niðurstöðurnar þar með áreiðanlegri. Það gerir okkur einnig kleift að rannsaka sjaldgæfari krabbamein sem erfitt væri að skoða hér á Íslandi með nægilegri nákvæmni.  

Í þessari rannsókn voru notuð gögn um meira en 2,2 milljónir krabbameinstilvika á Norðurlöndunum.  

Næstu skref 

Í þessu norræna samstarfi vísindamanna frá Karolinska Institutet, Samtökum norrænu krabbameinsskránna (Association of the Nordic Cancer Registries, ANCR) og Alþjóðakrabbameinsrannsóknastofnuninni (International Agency for Research on Cancer, IARC) munu framtíðarrannsóknir beinast að ítarlegri rannsóknum á byrði vegna krabbameina sem greinast snemma á ævinni. 

Brýnt er að bera kennsl á hópa sem eru í sérstaklega mikilli áhættu á að greinast með krabbamein snemma á lífsleiðinni, svo hægt sé að leggja grunn að markvissum forvarnaraðgerðum. 

Greinin  

Upplýsingar um fjármögnun og hugsanlega hagsmunaárekstra er að finna í rannsókninni. 

Trends in early-onset cancer incidence rates in the Nordic countries (2003–2022): a population-based study”, Johansson ALV, Kønig SM, Cardoso R, Møller H, Ursin G, Skog A, Persson Å, Birgisson H, Kristjánsdóttir L, Tanskanen T, Dahl-Olsen ED, Bray F, Friis S, Lambe M, Lancet Regional Health – Europe, online 12 September 2026, doi: 10.1016/j.lanepe.2026.101858.