Um átakið 2026
Mottumars er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak þar sem vakin er athygli á málefnum tengdum krabbameinum hjá körlum og um leið safnað fyrir mikilvægri starfsemi Krabbameinsfélagsins. Í ár beinum við sjónum sérstaklega að mikilvægi stuðnings og samstöðu og hvetjum karlmenn til að nýta sér í meira mæli þá ókeypis þjónustu sem þeim og aðstandendum þeirra býðst.
„Enginn einn“ er einkennisorð Mottumars í ár. Með því viljum við minna á að enginn á að þurfa að takast á við krabbamein einn síns liðs og að við sem samfélag berum sameiginlega ábyrgð á að standa þétt saman. Krabbameinsfélagið stendur með þeim sem greinast og aðstandendum þeirra, alla leið.
Léttir verulega á að þiggja aðstoð
Á hverju ári greinast 1.058 karlmenn með krabbamein á Íslandi. Að fá krabbameingetur kollvarpað tilverunni og margir upplifa að þeir missi tímabundið stjórn á eigin lífi. Oft fylgja flóknar tilfinningar á borð við ótta, depurð og jafnvel reiði. Krabbamein hefur ekki aðeins áhrif á líkamlega heilsu heldur getur það líka haft áhrif á sjálfsmynd, svefn, samskipti og daglegt líf.
Að deila líðan og reynslu með einhverjum sem við treystum hjálpar oft meira en okkur grunar, hvort sem það er fjölskyldumeðlimur, vinur eða einhver annar. Það er gott að geta sett þær tilfinningar sem við upplifum í orð, við það verða þær oft ekki eins yfirþyrmandi og auðveldara fyrir okkur að horfa á hlutina í víðara samhengi. Fyrsta skrefið getur reynst erfitt en oft kemur mönnum á óvart hvað það getur létt verulega á að deila áhyggjum sínum og þiggja aðstoð.
Krabbameinsfélagið býður upp á endurgjaldslausa ráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum og félagsráðgjöfum sem sérhæfa sig í að styðja við bakið á fólki og fjölskyldum sem standa frammi fyrir þessu gríðarstóra verkefni. Til viðbótar við allra þeirra fagþekkingu búa þau einnig að því að hafa dýrmæta innsýn inn í reynslu fjölmargra sem hafa fetað þennan veg áður. Með þeirra hjálp getur því reynsla annarra orðið þér að liði.
Þjónustan er veitt á íslensku, ensku, pólsku og þýsku. Hægt er að bóka viðtal í síma 800 4040 eða með því að senda tölvupóst á radgjof@krabb.is.
Við erum til staðar fyrir þig. Enginn einn.
Hvernig er söfnunarfé varið?
Allur ágóði af sölu Mottumarssokkanna rennur til starfsemi Krabbameinsfélagsins sem miðar að því að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og líði betur. Starfsemin byggir á stuðningi almennings og fyrirtækja og Mottumars er ein af lykilstoðum hennar.
Þitt framlag styður meðal annars við:
- Endurgjaldslausa ráðgjöf og stuðning hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og félagsráðgjafa við þau sem greinast og aðstandendur þeirra.
- Íslenskar rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum.
- Forvarnafræðslu, námskeið og heilsueflandi verkefni sem miða meðal annars að því að draga úr líkum á krabbameinum og bæta lífsgæði fólks með krabbamein.
- Afnot af íbúðum fyrir sjúklinga og aðstandendur, hagsmunagæslu og þjónustu á sex skrifstofum um land allt.
Takk fyrir að kaupa Mottumarssokkana og styðja þannig við baráttuna gegn krabbameinum.
Saman tryggjum við að enginn þurfi að standa einn.
