Skráning hafin í tvö síðustu skógarböð ársins. Átt þú eftir að prófa?
Skógarbað er alls ekki hefðbundið bað heldur rólegheitaútivist að japanskri fyrirmynd þar sem fullklætt fólk leyfir skóginum að umvefja sig eða „baðar sig í skóglendi“.
Mikil ánægja hefur verið meðal fólks með þau skógarböð sem boðið hefur verið upp á í samstarfi Krabbameinsfélagsins, Nature and Forest Therapy Iceland og Skógræktarfélags Íslands. Því var ákveðið að bjóða upp á tvö böð til viðbótar á þessu ári, 7. október og 4. nóvember kl. 13 - 15.
Skógarbað er alls ekki hefðbundið bað heldur rólegheitaútivist að japanskri fyrirmynd þar sem fullklætt fólk leyfir skóginum að umvefja sig eða „baðar sig í skóglendi“. Skógarböð eru enn ekki mikið þekkt hér á landi en ánægja fólks með þau böð sem boðið hefur verið upp á í samstarfi Krabbameinsfélagsins, Nature and Forest Therapy Iceland og Skógræktarfélags Íslands hefur undantekningalaust verið mjög mikil. Því var ákveðið að bjóða upp á tvö böð til viðbótar á þessu ári, 7. október og 4. nóvember kl. 13 - 15.
Markmiðið er að draga úr streitu og auka vellíðan og það hefur sannarlega tekist.
„Ég miklaði það fyrir mér að fara alla leið upp í Heiðmörk og var að hugsa um að hætta við en dreif mig svo af stað. Það var algerlega ferðarinnar virði. Upplifunin var frábær. Mér leið virkilega vel eftir baðið í skóginum og sú tilfinning kom upp aftur og aftur nokkra daga á eftir. Ég hvet svo sannarlega alla til að prófa“ – Hulda Björg Reynisdóttir, þátttakandi í skógarbaði í september.
Hvernig fer skógarbaðið fram?
Skógarbað er leidd slökun með áherslu á tengsl við náttúruna. Gengin er stutt vegalengd (að hámarki 1 km) og á leiðinni er þátttakendum auðveldað að slaka á, virkja skynfærin og efla tengsl við náttúru og sig sjálf. Einnig gefst tækifæri til að sitja í þögn og að deila upplifun sinni. Markmiðið er meðal annars að fólk öðlist aukna ró og betri líðan, aukna einbeitingu og orku.
Hvað þarf að hafa með sér?
Hlýr, þægilegur, vatnsheldur klæðnaður og grófir skór eru nauðsyn og það er betra að vera vel nærður áður en farið er af stað. Baðið tekur tvo tíma og gott er að hafa með sér teppi og heitt á brúsa. Þátttakendur fá vatnsheldar sessur að láni.
Mæting er kl. 12:50 og gangan hefst stundvíslega kl. 13. Ekki er hægt að slást í hópinn eftir að gangan hefst.
Staðsetning:
- Skógarbaðið fer fram í Heiðmerkurskógi við jaðar Elliðavatns og fólk mætir í Elliðavatnsbæinn
- Skoða staðsetningu
Skráning og frekari upplýsingar:
- Frekari upplýsingar er hægt að fá í síma 800 4040 eða með tölvupósti á radgjof@krabb.is Þátttakan er ókeypis en þar sem einungis 20 pláss eru í boði í hvort skipti er mjög mikilvægt að láta vita ef fólk forfallast
Ef veðurspá er óhagstæð fyrir hæglætisútivist af þessu tagi getur þurft að fresta baðinu. Komi til þess verða þátttakendur látnir vita með tölvupósti og/eða SMS.
Leiðbeinendur í skógarbaðinu eru þær Gunnþóra Ólafsdóttir landfræðingur, Ph.D og Íris Lana Birgisdóttir, félagsráðgjafi MA sem báðar hafa lokið þjálfun hjá Association of Nature and Froest Therapy (ANFT).
