Beint í efni
Félag trérennismiða 2026

Tré­renni­smið­ir á Ís­landi gefa hár­kollu­standa

Félag trérennismiða á Íslandi kom færandi hendi á dögunum með fallega hárkollustanda sem eru afrakstur góðgerðaáskorunar félagsins. Öll sem nota hárkollu vegna krabbameinsmeðferða geta komið við og valið sér stand, á meðan birgðir endast.

Hugmyndin að góðgerðaáskoruninni var sett fram á septemberfundi síðastliðið haust og er að erlendri fyrirmynd.

„Við vissum í raun ekki hver viðbrögðin yrðu, en fengum mjög góðar undirtektir og fjölmargir trérennismiðir tóku þátt í verkefninu“ segir Júlíana Ómarsdóttir, félagskona og hugmyndasmiður verkefnis félagsins. „Allir sem tóku þátt gáfu bæði vinnu og efnivið.“

Félag trérennismiða á Íslandi er um 300 manna félag áhugamanna um trérennismíði. Það hefur starfað frá 1994 og stendur meðal annars fyrir fræðslu, viðburðum og áskorunum til félaga.

Félagar spreyttu sig í kjölfarið á því að renna hárkollustandana samkvæmt nokkuð stöðluðum grunnfyrirmælum um stöðugleika og frágang, en höfðu þó mikið frelsi í útfærslu. Fyrir vikið er hver standur einstakur og eru sumir standar með skál í botninum þar sem hægt er að geyma spennur eða skartgripi.

Trérennismiðir á Íslandi gefa hárkollustanda
Trérennismiðir á Íslandi gefa hárkollustanda
Trérennismiðir á Íslandi gefa hárkollustanda

Stöndunum var síðan komið ýmist til Krabbameinsfélagsins, eða aðildarfélaga þess í öðrum landshlutum. Öll sem eru í krabbameinsmeðferð og hafa gagn af slíkum grip geta komið til okkar í Skógarhlíð og valið úr stöndum á meðan birgðir endast.

„Ef vel gengur og samstarfið vekur lukku hjá skjólstæðingum Krabbameinsfélagsins þá er vilji fyrir því að verkefnið verði árvisst,“ segir Júlíana. „Hugmyndin er þá að leita fastra samstarfsaðila sem væru mögulega tilbúnir að útvega efnivið.“

Krabbameinsfélagið þakkar félagi trérennismiða kærlega fyrir hugulsemina og fallegt handverk sem mun gleðja marga. Á opinni síðu Félags trérennismiða á Facebook og á heimasíðu þess má nálgast nánari upplýsingar um starf félagsins og verkefnið.

Trérennismiðir á Íslandi gefa hárkollustanda