Tökum Skref fyrir lífið saman
Föstudaginn 20. nóvember hefst viðburðurinn Skref fyrir lífið til styrktar Krabbameinsfélaginu. Við hvetjum öll til að mæta, taka þátt og styðja við málefnið.
Það verður líf og fjör í æfingastöðinni UltraForm alla næstu helgi. Þá ætla ofurhlaupararnir Karlotta Ósk Óskarsdóttir og Sigurjón Ernir Sturluson að láta gott af sér leiða með skemmtilegri áskorun. Frá föstudagsmorgni til sunnudags ætlar Karlotta að hlaupa samtals 200 km á hlaupabretti í Ultraform æfingarstöðinni. Á meðan ætlar Sigurjón að taka 50 umferðir af æfingum á hverjum degi, samtals 150 umferðir.
Þau Karlotta og Sigurjón eru bæði þaulvön slíkum áskorunum. Á undanförnum 15 mánuðum hefur Karlotta tekið þátt í sjö hlaupaviðburðum sem ná yfir marga daga, þar af þremur þar sem hún hljóp meira en 500 kílómetra í senn. Á þessum 15 mánuðum hefur hún einnig slegið 10 Íslandsmet. Sigurjón er sömuleiðis afreksíþróttamaður og eigandi UltraForm. Hann hefur náð mjög góðum árangri í hlaupum jafnt sem hinum ýmsu þrekkeppnum, auk þess að vera þjálfari og fræða fólk um heilbrigði.
Öll sem vilja styðja við verkefnið eru velkomin að kíkja á þau í UltraForm stöðinni um helgina. Þau sem vilja geta hlaupið með Karlottu eða tekið æfingu með Sigurjóni, eða bara hvatt aðra til dáða. Eins og þau segja sjálf þá gerir stuðningurinn hvert skref auðveldara. Að auki verður hægt að styrkja Krabbameinsfélagið með frjálsum framlögum á staðnum og á netinu. Einnig verður hægt að fylgjast með þeim í streymi allan sólarhringinn.
Tökum Skref fyrir lífið saman.
