Beint í efni
BYD SEAL U í Smáralind

Þriðju­dag­inn 17. júní verð­ur dreg­ið í Sum­ar­happ­drætti Krabba­meins­fé­lags­ins

Þau sem líta vilja 1. vinning augum, BYD SEAL U, 100% rafmagnsbíl, geta lagt leið sína í Smáralindina helgina 14. og 15. júní, en þar er einnig hægt að versla happdrættismiða á opnunartíma. 

Bíllinn er staðsettur á 1. hæð gegnt ZARA og Name it/Dýrabæ.

Athugið að ekki verður opið í verslun Krabbameinsfélagsins á þjóðhátíðardaginn en þau sem þurfa aðstoð við kaup á miðum, greiðslu krafna í heimabanka eða verslun á netinu geta haft samband með tölvupósti á vala@krabb.is, eða í síma 792 5080 fram til kl.12 á hádegi. 

Opið er í vefverslun allan sólarhringinn en sölu á happdrættismiðum lýkur þó klukkan 12 á hádegi þann 17. júní. 

Vinningaskrá verður birt á vefsíðu Krabbameinsfélagsins seinnipartinn þann 18. júní og í Morgunblaðinu fimmtudaginn 19. júní.