Beint í efni
Hugljúf fjölskyldumynd.

Þér er boð­ið í af­mæl­is­veislu

Krabbameinsfélag Íslands fagnar 75 ára afmæli.

Krabbameinsfélag Íslands fagnar 75 ára afmæli í ár og á þeim merku tímamótum langar okkur að þakka þeim sem sýna stuðning í verki og gera starfsemi Krabbameinsfélagsins mögulega. Við ætlum að halda afmælisveislur á fjórum stöðum á landinu: 

  • Hljómahöllinni, Reykjanesbæ – 2. september 
  • Sviðinu, Selfossi – 3. september 
  • Hofi, Akureyri – 8. september 
  • Skrúði, Fáskrúðsfirði – 14. september  

Hinn landskunni tónlistarmaður Jón Ólafsson mun stýra veislunum og skemmta með liðsinni söngkonunnar Hildar Völu Einarsdóttur. Veisluhöldin standa á milli kl. 17 og 19 og saman munum við njóta góðra veitinga, gleðjast í hópi góðra vina og fagna þeim árangri sem náðst hefur í gegnum árin. Okkur þætti afar vænt um að sjá sem flest af okkar öfluga stuðningsfólki og bjóðum þér að velja þann stað sem hentar þér best

Skiptir öllu að fólk láti sig málin varða

„Við hlökkum mikið til að fá að þakka öllu hinu góða stuðningsfólki Krabbameinsfélagsins fyrir stuðninginn í gegnum árin,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. „Það að fólk láti sig málin varða og sýni stuðninginn í verki skiptir öllu máli og gerir alla starfsemi Krabbameinsfélagsins mögulega, hvort sem um er að ræða forvarnir, vísindastarf eða stuðning. Stórir áfangar hafa náðst en áskoranirnar eru líka margar fram á veginn. Okkar öfluga stuðningsfólk á allt gott skilið og það verður gaman að hitta það í heimabyggð.“

Allt starf Krabbameinsfélagsins miðar að því að fækka þeim sem fá krabbamein, fjölga þeim sem læknast eða lifa með krabbameini og að líf og lífsgæði þeirra og aðstandenda þeirra séu sem best. Nú fögnum við þeim árangri sem náðst hefur í gegnum árin með dýrmætum stuðningi þjóðarinnar og eigum ljúfa stund saman.