Beint í efni
Aðalfundur Krabbameinsfélagsins 2025

Storm­ur í að­sigi – líf­ið ligg­ur við

Aðalfundur Krabbameinsfélagsins sem haldinn var 25. maí 2025 skorar á stjórnvöld að setja viðmið um biðtíma og hámarksbiðtíma krabbameinsmeðferða í ályktun sinni um stöðu krabbameinsmála á Íslandi. Krabbameinssjúklingar bíða í mörgum tilvikum allt of lengi eftir meðferðum hér á landi.

Á vel sóttum aðalfundi Krabbameinsfélagsins var samþykkt ályktun sem fjallar um mikilvægi þess að undirbúa heilbrigðiskerfið fyrir stöðuga og fyrirsjáanlega fjölgun krabbameina. Er þar sérstaklega rætt um biðtíma sjúklinga eftir þjónustu og áhrif hans en of langur biðtími getur haft áhrif á sjúkdómsþróun, lengir veikindatímabil og veldur miklu viðbótarálagi á sjúklinga og aðstandendur.

Sem dæmi má nefna að 35% kvenna með brjóstakrabbamein biðu milli 28 og 40 daga eftir skurðaðgerð á fyrstu þremur mánuðum ársins sem er samkvæmt upplýsingum frá Landspítala langt frá skilgreindum hámarksbiðtíma í Danmörku. Slík opinber viðmið eru ekki til á Íslandi, en brýnt er að setja þau því þau eru grundvöllur þess að hægt sé að taka ákvörðun um hvort beina þurfi fólki til meðferðar erlendis. Biðtími er sérstaklega langur eftir geislameðferð hér á landi en samkvæmt upplýsingum frá Landspítala bíður helmingur kvenna með brjóstakrabbamein lengur en 73 daga eftir geislameðferð. Vísbendingar eru um að biðtími eftir skurðaðgerðum vegna sumra krabbameina sé einnig í mörgum tilvikum orðinn of langur.

Alþjóðleg vottun krabbameinsþjónustu á Landspítala og væntanleg opinber aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum eru mikil framfaraskref en hraða þarf allri vinnu til að tryggja áframhaldandi árangur varðandi krabbamein hér á landi. Þá er afar brýnt að bæta úr aðstöðu fyrir krabbameinsmeðferðir.

Í ályktuninni er einnig skorað á stjórnvöld að setja forvarnir til að efla lýðheilsu landsmanna í forgang þannig að lýðheilsusjónarmið séu alltaf í fyrirrúmi. Stjórnvöld eru hvött til að taka djarfar ákvarðanir, virða gildandi lög og reglur og auðvelda ekki aðgengi að áfengi, tóbaks- og nikótínvörum. Árangur Íslands á sviði tóbaksvarna og forvarna gegn áfengisneyslu hjá ungmennum er öfundsverður og standa þarf vörð um hann og setja markið enn hærra. Með samstilltu átaki er hægt að koma í veg fyrir fjögur af hverjum tíu krabbameinum.

Hér fyrir neðan má lesa ályktunina í heild sinni:

Stormur í aðsigi – lífið liggur við


Á undanförnum árum hefur aðalfundur Krabbameinsfélagsins ályktað um mikilvægi þess að undirbúa heilbrigðiskerfið fyrir stöðuga og fyrirsjáanlega fjölgun krabbameina. Í ályktununum hefur verið horft til aðgerða sem tengjast veðri og jarðhræringum og stöðu mála hvað varðar krabbamein lýst sem gulri viðvörun og hvatt til að byggðir verði varnargarðar um heilsu. Í dag er ljóst að ekki var of sterkt að orði kveðið. Allt bendir til að lægðin fari hraðar yfir en gert var ráð fyrir, stormurinn er að skella á. 

Í heilbrigðisþjónustunni eru bjargir ekki nægjanlegar til að bregðast við hvað krabbameinsþjónustu varðar. 

Í nágrannalöndununum hafa verið sett viðmið um biðtíma og hámarksbiðtíma hvað krabbameinsmeðferð varðar. Slík viðmið hafa ekki verið sett hér á landi og úr því er brýnt að bæta en ef horft er til hámarksbiðtíma í Danmörku er ljóst, út frá upplýsingum frá Landspítala, að krabbameinssjúklingar bíða í mörgum tilvikum allt of lengi eftir sinni meðferð hér á landi. Staðan er sérstaklega slæm varðandi geislameðferð en vísbendingar eru um að biðtími eftir sumum skurðaðgerðum vegna krabbameina sé einnig í mörgum tilvikum orðinn of langur. Til dæmis biðu um 35% kvenna með brjóstakrabbamein hátt í 50% lengur en hámarksviðmið í Danmörku segja til um á fyrstu þremur mánuðum ársins eftir skurðaðgerð. Tölur um biðtíma eftir lyfjameðferðum á Landspítala liggja ekki fyrir.  

Opinber viðmið um biðtíma þarf að ákveða og þau þurfa að vera aðgengileg notendum þjónustu. Þegar þau nást ekki þarf að liggja fyrir hvaða möguleika fólk á, til dæmis að sækja nauðsynlega meðferð erlendis og auðvelda fólki að sækja þá þjónustu. Of langur biðtími getur haft áhrif á sjúkdómsþróun, lengir veikindatímabil og veldur miklu viðbótarálagi á sjúklinda og aðstandendur.  

Þörfin fyrir meðferð við krabbameinum eykst stöðugt og eykst hratt. 

Til að mögulegt sé að mæta þörf verður umfang verkefnisins að liggja fyrir, svo og geta þjónustunnar til að sinna því. Svo er ekki í dag. Gagna- og gæðastýrð krabbameinsþjónusta er eitt af því sem Krabbameinsfélagið hefur sett á oddinn í sinni stefnu enda forsenda þess að allir fái þjónustu við hæfi á réttum tíma. Því miður virðist vera talsvert í land með þetta á Landspítala, sem eru vonbrigði árið 2025.  

Þörf fyrir krabbameinsþjónustu er mjög vaxandi og til að tryggja áframhaldandi góðan árangur verður að gefa verulega í. Krabbameinsfélagið fagnar vinnu Landspítala við að uppfylla skilyrði um alþjóðlega vottun fyrir krabbameinsþjónustu í landinu, slík vottun mun fyrst og fremst koma sjúklingunum til góða en tekur tíma.  

Þingsályktun um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum hefur verið lögð fram og er mikið framfaraskref. Krabbameinsfélagið tekur sitt hlutverk sem hagsmunasamtök fólks með krabbamein alvarlega og mun fylgjast með framgangi hennar, veita aðhald og hvetja stjórnvöld í sinni vinnu. 

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins árið 2021 setti félagið aðstöðu dag- og göngudeildar krabbameinsþjónustunnar á Landspítala á dagskrá enda húsnæðið löngu sprungið. Enn hefur ekki frést af úrlausn þeirra mála og aðstaða fyrir geislameðferð er nú orðið bráðamál. Við þetta verður ekki búið.  

Aðalfundur Krabbameinsfélagsins skorar á stjórnvöld og heilbrigðisyfirvöld að flýta þeim aðgerðum sem nauðsynlegar eru til að bregðast við storminum sem er í aðsigi, það er þegar farið að bæta í vind. Bæta þarf vinnu við skráningu og gagnavinnslu svo staða mála sé skýr og mögulegt að bregðast við bæði í rauntíma og til framtíðar, taka ákvarðanir og fjármagna aðstöðu, tækjabúnað og tryggja þjálfun sérhæfðs starfsfólks. Lífið liggur við.  

Stöndum vörð um það sem gott er; Heilsan er það dýrmætasta sem við eigum 

Aðalfundur Krabbameinsfélagsins hvetur heilbrigðisráðherra í samstarfi við önnur stjórnvöld, að setja forvarnir til að efla lýðheilsu í forgang. Margir erlendis horfa til Íslands varðandi árangur í tóbaksvörnum og áfengisneyslu hjá ungmennum. Standa þarf vörð um þennan árangur og gera enn betur. 

Aðalfundur Krabbameinsfélagsins skorar á stjórnvöld að taka skýra afstöðu með lýðheilsu og fólkinu í landinu, taka djarfar ákvarðanir, virða gildandi lög og reglur og auðvelda ekki aðgengi að áfengi, tóbaks- og nikótínvörum. Ef einhver vafi leikur á, láta lýðheilsuna njóta vafans.  

Lýðheilsa þjóðarinnar í dag stýrir þörfum fyrir heilbrigðisþjónustu á morgun. Með samstilltu átaki er hægt að koma í veg fyrir fjögur af hverjum tíu krabbameinum.