Sjáðu þig - Bleika slaufan 2026
Í dag, miðvikudaginn 30. september, hefst Bleika slaufan. Að þessu sinni viljum við hvetja konur til að sjá sig og vera vakandi fyrir einkennum krabbameina.
Í ár öðlast sýnileiki Bleiku slaufunnar nýja og mikilvæga dýpt, því með henni viljum við hvetja konur til að sjá sig og vera vakandi fyrir einkennum sem bent geta til krabbameins eins og óútskýrðu þyngdartapi, sárum sem ekki gróa, breytingum á fæðingarblettum, hnútum, óútskýrðri þreytu, óvenjulegum blæðingum og fleiru. Flest einkenni reynast vera af völdum annars en krabbameins, en því fyrr sem krabbamein greinast, því betri líkur eru á lækningu og léttari meðferð.
Á hverju ári fá að meðaltali 1.038 konur krabbamein og standa þá frammi fyrir einni stærstu áskorun lífs síns. Framfarir í krabbameinsmeðferð eru sem betur fer stöðugar og sífellt fleiri læknast eða lifa lengi með sjúkdóminn. Í árslok 2025 voru 10.809 konur á lífi sem höfðu fengið krabbamein.

Bleika slaufan í ár hönnuð samhliða krabbameinsvegferð
Hönnuðir slaufunnar í ár, Tanja Levý og Jökull Jónsson, þekkja af eigin raun hvernig það er þegar krabbamein kollvarpar tilverunni. Tanja greindist með brjóstakrabbamein í október í fyrra, einungis 36 ára að aldri, en hún var þá með ársgamalt barn þeirra á brjósti. Hún lýsir því að vegna Bleiku slaufunnar sem var þá nýfarin af stað, hafi hún verið sérstaklega vakandi fyrir einkennum og sjálf fundið hnútinn í brjóstinu.
Þau hafa fléttað reynslu sína með einstökum hætti inn í hönnun slaufunnar í ár. „Slaufan er innblásin af krabbameinsvegferðinni og vísar í tímalínu bleika ársins okkar,“ segir Tanja. „Þetta er úrvinnsla úr tilfinningum okkar og því sem við vorum að ganga í gegnum og það var heilandi ferli að fá tækifæri til að setja þær tilfinningar í hönnunina, það hjálpaði okkur.“


Sóttu innblástur í japönsku aðferðina Kintsugi
Fremri borði slaufunnar er spegilsléttur og táknar tímabilið fyrir greininguna. Aftari borðinn er hrjúfur og stendur fyrir krabbameinsmeðferðina. Sprungan er tákn um áskoranir og ör á líkama og sál sem fylgja ferlinu öllu. Sprunguna prýðir bleikur steinn sem táknar styrk, von og samstöðu. „Við sóttum innblástur í japanska aðferð sem kallast Kintsugi,“ segir Jökull. „Þá eru brotnir hlutir límdir saman með gulli til að heiðra brotin, ekki til að fela þau heldur sýna þau. Brotin segja sögu hlutarins og hann er talinn ekkert síður fallegri þótt að brotin sjáist.“
Þá er litur slaufunnar sérvalinn til að vera áberandi. „Tanja ákvað í lyfjameðferðinni að klæða sig upp og bera höfuðið hátt og vera sýnileg og við vildum hafa slaufuna þannig líka,“ segir Jökull. „Hún er skærbleik og vel sýnileg og maður getur verið stoltur af því að bera hana.“
Líkt og fyrri ár var framleidd Sparislaufa, sem í ár er stílhreint, gullhúðað koparhálsmen í samlitri keðju og prýtt þremur dökkbleikum Swarovski steinum. Sparislaufan kemur í takmörkuðu upplagi og hefur oft selst upp á fyrstu dögum átaksins og því er gott að tryggja sér eintak í tíma.

Heiður að fá að hanna slaufuna
Tanja segir dýrmætt að hafa getað leitað til Krabbameinsfélagsins eftir greininguna. „Það var í raun eitt fyrsta símtalið sem ég átti eftir að hafa fengið greininguna og ég var gripin svo vel þar og fjölskyldan mín líka.“ Þau Jökull eru sammála um að það sé þýðingarmikið fyrir þau að fá tækifæri til að hanna slaufuna. „Það er ótrúlega mikill heiður fyrir okkur að taka þátt í þessu og hafa fengið að hanna þetta samstöðutákn sem fjármagnar rannsóknir, eflir forvarnir, veitir ókeypis stuðning og er áminning um hvað það er mikilvægt að bregðast hratt við.“
Hvar fæst Bleika slaufan?
Undanfarin ár hafa verið framleiddar tvær útgáfur af Bleiku slaufunni; almenna slaufan sem er næla og Sparislaufan sem er hálsmen og kemur í takmörkuðu upplagi.
Bleika slaufan verður í sölu frá 30. september til 24. október í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins og hjá hátt í 400 söluaðilum um land allt.
Sparislaufan fæst í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins, auk þess sem hún er til sölu í Mebu skartgripaverslun í Kringlunni og Smáralind.
Fæstir vita að Krabbameinsfélagið nýtur ekki opinberra styrkja. Allt sem við gerum er fyrir tilstilli styrkja frá fólki og fyrirtækjum og væri ekki mögulegt án þeirra. Með því að kaupa Bleiku slaufuna gerir þú okkur kleift að vera tryggur bakhjarl fólks með krabbamein og aðstandenda þeirra og leiðandi í forvörnum og þekkingarmiðlun um krabbamein.
