Sjáðu auglýsingu Mottumars 2026
Enginn einn er boðskapur Mottumars í ár, en með því viljum við minna á að enginn á að þurfa að takast á við krabbamein einn síns liðs.
Í auglýsingunni í ár fylgjumst við með ungum manni sem er nýbúinn að fá þær þungbæru fréttir að hann sé með krabbamein.
Á augabragði fær hann innsýn inn í næstu daga, vikur og mánuði og þar stendur upp úr allur stuðningurinn sem fjölskylda, vinir, fagfólk og aðrir veita honum. Við sjáum að skrefin eru léttari í kjölfarið.
Léttir að þiggja aðstoð
Á hverju ári greinast rúmlega þúsund karlmenn með krabbamein á Íslandi. Að fá krabbamein getur kollvarpað tilverunni og margir upplifa að þeir missi tímabundið stjórn á eigin lífi. Í ár beinum við sjónum sérstaklega að mikilvægi samstöðu og hvetjum karlmenn til að nýta sér í meira mæli allan þann stuðning og þá ókeypis þjónustu sem þeim og aðstandendum þeirra býðst hjá okkur í Krabbameinsfélaginu.
Að deila líðan og reynslu með einhverjum sem við treystum hjálpar oft meira en okkur grunar, hvort sem það er fjölskyldumeðlimur, vinur eða einhver annar. Það er gott að geta sett þær tilfinningar sem við upplifum í orð, við það verða þær oft ekki eins yfirþyrmandi og auðveldara fyrir okkur að horfa á hlutina í víðara samhengi. Fyrsta skrefið getur reynst erfitt en oft kemur mönnum á óvart hvað það getur létt verulega á að deila áhyggjum sínum og þiggja aðstoð.
Við þökkum öllum þeim fjölmörgu aðilum sem komu að gerð auglýsingarinnar á einn eða annan hátt – við metum framlag ykkar mikils.
Ráðgjöf og stuðningur þér að kostnaðarlausu
Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku, pólsku og þýsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.
