Reykjavíkurmaraþonið er að bresta á
Nú þegar einungis örfáir dagar eru í Reykjavíkurmaraþonið er tilhlökkunin að ná hámarki enda er viðburðurinn alveg stórkostlegur.
Hlaupið fer fram næsta laugardag, 22. ágúst. Kynntu þér hlauparana okkar hér.
Við erum afar þakklát öllum þeim sem hlaupa fyrir Krabbameinsfélagið og öllum sem heita á hlauparana og styðja þannig við starfsemi félagsins sem byggir alfarið á stuðningi einstaklinga og fyrirtækja. Hjartans þakkir.
Starfsmenn félagsins vinna alla daga að því að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og njóti lífsins með og eftir krabbamein.
Kíktu á básinn okkar á Fit&Run
Krabbameinsfélagið verður með bás F-20 á sýningunni Fit & Run í Laugardalshöll fimmtudaginn 20. og 21. ágúst og eru hlauparar hvattir til að koma við og fá merktan hlaupabol og gjafapoka að gjöf. Starfsfólk félagsins mun taka vel á móti þeim og öllum öðrum gestum sem kíkja í heimsókn.
Öll velkomin í stuðið og stemminguna á hvatningarstöðinni
Á hlaupadag eru öll velkomnin á hvatningarstöð Krabbameinsfélagsins, á Austurströnd 7 Seltjarnarnesi, þar sem við munum styðja dyggilega við öll sem hlaupa til góðs.
Við hlökkum til að sjá ykkur í Reykavíkurmaraþoninu!
Í upphitun fyrir Reykjavíkurmaraþonið tókum við stöðuna á nokkrum hlaupurum sem ætla að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Gunnar Ármannsson greindist með blóðkrabbamein í lok árs 2025. Hann byrjaði að hlaupa 2008 og hefur verið nær óstöðvandi síðan - hlaupið hátt í 70 maraþon. Gunnar hvetur þá sem eru að taka sín fyrstu hlaupaskref að hlaupa hægt, finna sinn hraða og viðhalda honum.
