Opnunarhátíð Bleiku slaufunnar í Perlunni – Tryggðu þér miða
Vertu með þeim fyrstu til að bera Bleiku slaufuna á einstöku kvöldi í Perlunni 30. september. Bleika slaufan er handan við hornið og við fögnum upphafi hennar saman í einu glæsilegasta kennileiti Reykjavíkur, Perlunni.
Húsið opnar kl. 17:30 og boðið verður upp á bleikan óáfengan fordrykk. Við hvetjum gesti til að mæta tímanlega, því miðinn tryggir einnig aðgang að einstökum sýningum Perlunnar og íshellinum. Samstarfsaðilar Bleiku slaufunnar verða á sínum stað og kynna og selja bleikar vörur til styrktar átakinu.
Aðgangsmiði á opnunarhátíðina kostar kr. 8.900. Bleika slaufan fylgir hverjum miða og verður afhent við innganginn. Einnig er aðgangur að sýningum Perlunnar og íshellinum innifalinn í miðaverði.

Tríóið Fjarkar taka á móti gestum með ljúfum jazz tónum á 5. hæðinni.
Stórglæsileg dagskrá hefst kl. 19:00 á sviðinu á 5. hæð. Þar mun Forseti Íslands heiðra samkomuna með stuttu ávarpi, við frumsýnum auglýsingu Bleiku slaufunnar og nokkrar af skærustu tónlistarstjörnum landsins stíga á stokk:
- Ragnhildur Gísladóttir og Halldór Gunnar
- Páll Óskar
- Sigríður Thorlacius
- Valdimar
Ólafía Hrönn stýrir veislunni.
Dagskrá lýkur kl. 21:00 og húsið lokar.
Aðgangsmiði á opnunarhátíðina kostar kr. 8.900. Bleika slaufan fylgir hverjum miða og verður afhent við innganginn. Miðinn veitir einnig aðgang að einstökum sýningum Perlunnar og íshellinum.
Tryggðu þér miða og vertu með okkur á ógleymanlegu bleiku kvöldi í Perlunni þann 30. september. Við hlökkum til að sjá þig!

Bleika slaufan
Bleika slaufan er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins gegn krabbameini hjá konum.
Allt starf Krabbameinsfélagsins miðar að því að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og njóti lífsins – með og eftir krabbamein. Stuðningur einstaklinga og fyrirtækja er forsenda fyrir starfi félagsins, sem byggir alfarið á söfnunarfé.
