Beint í efni
Jóhanna

Öfl­ug­ur liðs­auki frá Há­skól­an­um í Reykja­vík

Krabbameinsfélaginu barst öflugur liðsauki í janúar þegar Jóhanna Stefáns Bjarkardóttir, meistaranemi í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík, bættist tímabundið í ráðgjafahóp félagsins.

Jóhanna, sem útskrifast sem sálfræðingur í vor, starfar undir handleiðslu sálfræðings félagsins. Hún er hluti af þverfaglegu teymi félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga sem veita stuðning og ráðgjöf öllum þeim sem greinast með krabbamein og aðstandendum, þeim að kostnaðarlausu.

Krabbameinsfélagið hefur lagt metnað sinn í að vera í góðu samstarfi við háskólana, bæði með því að bjóða nemum í starfsþjálfun sem og að taka að sér stundarkennslu. Það er félaginu dýrmætt að vera í góðu samstarfi við háskólana. Fyrir sálfræðinema fæst gríðarlega góð reynsa að vinna með einstaklingum sem eru að takast á við krabbamein, bæði þeim sem sjálf hafa greinst með krabbamein sem og aðstandendum.

Jóhanna Stefáns Bjarkardóttir mun útskrifast úr klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík í júní en hún er einnig með diplómu í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands og hefur mikinn áhuga á forvarnarvinnu. Síðastliðið haust var Jóhanna í starfsnámi hjá Auðnast. Hún hefur fjölbreytta reynslu og hefur starfað Geðsviði LSH; mótttökugeðdeild fíknimeðferðar og geðrofs- og samfélagsgeðteymi göngudeildar geðrofssjúkdóma, ásamt því að starfa fyrir Rauða Krossinn; Hjálparsíma RKÍ 1717, Geðlestina og hjá teymi geðheilbrigðis og félagslegrar þátttöku.

Krabbameinsfélagið býður Jóhönnu velkomna til starfa undir handleiðslu sálfræðings félagsins og óskar henni velfarnaðar.