Beint í efni
Bæklingur - Eftir brjóstakrabbamein Óttinn við að endurgreinast 1

Nýtt fræðslu­efni ætl­að þeim sem hafa lokið með­ferð við brjósta­krabba­meini

Eftir brjóstakrabbamein - Óttinn við að endurgreinast, einkenni sem ætti að vera vakandi fyrir og leiðir til að hlúa að heilsunni.

Út er komið nýtt fræðsluefni sem ætlað er þeim sem hafa lokið meðferð við brjóstakrabbameini. Bæklingurinn ber heitið ,,Eftir brjóstakrabbamein - Óttinn við að endurgreinast, einkenni sem ætti að vera vakandi fyrir og leiðir til að hlúa að heilsunni".

Þótt meðferð við brjóstakrabbameini sé lokið geta ýmsar erfiðar hugsanir, spurningar og blendnar tilfinningar eins og áhyggjur og hræðsla leitað á í kjölfarið. Ekki þarf að koma á óvart að margir óttast að hugsanlega muni meinið gera vart við sig aftur og geta líkamlegar breytingar vakið upp óöryggi. Þá er mikilvægt að hafa aðgang að áreiðanlegum upplýsingum um hvenær ástæða sé til að leita til heilbrigðisstarfsfólks og hvernig hægt er að hlúa að eigin heilsu.

Markmiðið með útgáfu efnisins er að auðvelda lesendum að átta sig á því hvað ber að hafa í huga eftir að meðferð lýkur og veita þeim stuðning til að takast á við óvissuna sem getur fylgt þessum nýja kafla lífsins.

Bæklinginn er nú hægt að fá hjá Krabbameinsfélaginu í Skógarhlíð og á Brjóstamiðstöð Landspítala en verður einnig dreift víðar.

Hann er einnig aðgengilegur rafrænn hérna (pdf-skjal).

Vonast er til að bæklingurinn nýtist þeim fjölmörgu sem hafa lokið meðferð við brjóstakrabbameini, veiti fræðslu og stuðning og veki athygli á mikilvægi þess að hlúa að eigin heilsu og vellíðan.

Bæklingur - Eftir brjóstakrabbamein Óttinn 2

Bæklingurinn er gefinn út að frumkvæði kvenna í Brjóstaheillum – Samhjálp kvenna sem er eitt aðildarfélaga Krabbameinsfélagsins og í samvinnu beggja félaganna.

Fræðsluefnið er þýtt og staðfært úr sænsku og byggir á fræðsluefni sænsku brjóstakrabbameinssamtakanna, Bröstcancerförbundet.

Myndskreytingar voru í höndum Bríetar Davíðsdóttur grafísks hönnuðar og ljá þær bæklingnum litríkt og fallegt yfirbragð.

Nemendafélagið Huginn við Menntaskólann á Akureyri stóð fyrir fjáröflun til stuðnings Brjóstaheillum og rann ágóðinn til útgáfu bæklingsins.