Norrænn samstarfshópur fundar hjá Krabbameinsfélaginu
Undanfarna daga hefur verið óvenju margt um manninn í Skógarhlíðinni, en fulltrúar samnorræna samstarfshópsins CAPOC héldu árlegan fund sinn á Íslandi að þessu sinni. Hópurinn vinnur að ráðleggingum til stjórnvalda á Norðurlöndum um aðgerðir til að vinna gegn ofþyngd og offitu barna.
Frá árinu 2022 hafa norrænu krabbameinsfélögin átt í samstarfi um verkefnið „Common Actions for the Prevention of Overweight and Obesity among Children in the Nordic countries“ eða CAPOC. Verkefnið er eitt af stefnumótandi verkefnum Samtaka norrænu krabbameinsfélaganna (NCU) sem Krabbameinsfélagið á aðild að. Fulltrúi Íslands í samstarfshópnum er Sigrún Elva Einarsdóttir, teymisstjóri fræðslu og forvarna hjá Krabbameinsfélaginu.
Viðamikil skýrsla var gefin út á síðasta ári, þar sem kerfisbundið var farið yfir gagnreynda þekkingu á þessu sviði og út frá skýrslunni voru settar fram ráðleggingar til stjórnvalda. Ráðleggingarnar snúa meðal annars að merkingum og markaðssetningu á óhollum mat og drykkjum sem beint er að börnum, auk almennra ráðlegginga um hollt mataræði og hreyfingu.
Vandinn er umfangsmikill, flókinn og margþættur og engin einföld lausn dugar til. Með samtakamætti stjórnvalda, skóla og heimila er þó hægt að móta og hafa jákvæð áhrif á mataræði og hreyfivenjur barna og byggja traustan grunn fyrir áframhaldandi velgengni út lífið. Við þökkum fulltrúum samstarfshópsins kærlega fyrir heimsóknina og óskum þeim áframhaldandi velfarnaðar með eftirfylgd verkefnisins.
- Þann 13. nóvember 2025 kynntu norrænu krabbameinsfélögin ráðleggingarnar til stjórnvalda um aðgerðir til að sporna gegn offitu og ofþyngd barna á Norðurlöndum. Kynningin fór fram í danska þinginu í Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn. Sjá nánar hér.