Nikótínpúðar – Unga fólkið – Markaðsöflin
Opinn, rafrænn fræðslufundur WHO um aðferðir nikótín- og tóbaksiðnaðarins til markaðssetningar nikótínpúða.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) stendur fyrir opnum rafrænum fræðslufundi fimmtudaginn 28. maí klukkan 11-12 á ísl. tíma sem snýr að því hvernig nikótíniðnaðurinn knýr áfram útbreiðslu nikótínpúða og hvaða áskoranir það skapar fyrir lýðheilsu og regluverk (Exposing Industry Tactics Behind Nicotine Puch Expansion and the Regulatory Implications).
Viðburðurinn tengist alþjóðlega tóbakslausa deginum (World No Tobacco Day) 2026 sem í ár hefur ensku yfirskriftina „Unmask the appeal – countering nicotine and tobacco addiction“.
Skráning á rafræna fræðslufundinn og nánari upplýsingar (enska) World No Tobacco Day – 31 May 2026 .
Ungt fólk er sérstaklega viðkvæmt fyrir neikvæðum áhrifum nikótíns
Þriðjungur ungs fólks á Íslandi notar nú nikótínpúða og er hlutfallið það hæsta á Norðurlöndunum. Ungt fólk er sérstaklega viðkvæmt fyrir ýmsum neikvæðum áhrifum nikótíns, ekki hvað síst vegna áhrifa á heilaþroska sem á sér stað vel fram yfir tvítugt, auk þess sem líkur á mikilli fíkn aukast eftir því sem einstaklingar byrja yngri.
Nikótínnotkun getur haft ýmis skaðleg áhrif, meðal annars á munnheilsu, hjarta- og æðastarfsemi og andlega líðan auk þess sem ekki má gleyma að langtímaáhrif eiga eftir að koma í ljós. Því er verulega mikilvægt að fjallað sé um það hvernig öflug markaðsöfl og hagsmunaaðilar knýja áfram útbreiðslu vöru sem er langt frá því að vera eins saklaus og oft er látið í veðri vaka. Almenningur og yfirvöld þurfa að átta sig á hvernig markviss markaðssetning hefur áhrif á útbreiðslu nikótínpúða meðal ungs fólks.
