Beint í efni
Aðalfundur Krabbameinsfélagsins 2025

Nið­ur­fell­ing virð­is­auka­skatts hjá al­manna­heilla­fé­lög­um

Léttum rekstur krabbameinsfélaga um land allt og tryggjum að sjálfsaflafé fái að renna óskipt til ómissandi starfsemi félaganna.

Nýafstaðinn aðalfundur Krabbameinsfélags Íslands tekur undir með Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, sem skoraði á stjórnvöld að fella niður virðisaukaskatt á starfsemi björgunarsveita og skorar á stjórnvöld að tryggja Krabbameinsfélagi Íslands og aðildarfélögum þess niðurfellingu á virðisaukaskatti vegna starfsemi sinnar. Krabbameinsfélagið er að undanskildum ca 5% rekstrarfjár, alfarið rekið fyrir sjálfsaflafé, styrki frá almenningi og fyrirtækjum í landinu. Hið sama gildir um aðildarfélög þess, 20 svæðafélög um land allt og sjö stuðningsfélög. Allt söfnunarfé félaganna rennur til framfaraverkefna á sviði krabbameinsforvarna, vísindastarfs og stuðnings við sjúklinga og aðstandendur og er því um mikilvægt almannaheillaverkefni að ræða.

Í starfsemi á borð við þá sem krabbameinsfélögin inna af höndum er horft í hverja krónu og með þessum stuðningi mætti létta rekstur félaganna og gera þeim kleift að sinna sínum verkefnum enn betur. Krabbameinsfélagið leggur til að stuðningurinn verði útfærður með þeim hætti að félagið greiði virðisaukaskatt en fái síðan endurgreiðslu.


Ályktun aðalfundar Krabbmeinsfélagsins 24. maí 2025
Niðurfelling virðisaukaskatts hjá almannaheillafélögum

Aðalfundur Krabbameinsfélags Íslands haldinn í Reykjavík þann 24. maí 2025 tekur undir með Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu og skorar á stjórnvöld að tryggja Krabbameinsfélagi Íslands og aðildarfélögum þess niðurfellingu á virðisaukaskatti vegna starfsemi sinnar.

Krabbameinsfélag Íslands og aðildarfélög þess eru félög til almannaheilla og gegna mjög þýðingarmiklu starfi í íslensku samfélagi. Krabbameinsfélagið hefur með aðildarfélögum sínum, frá því það var stofnað árið 1951, sinnt ótal framfaraverkefnum, krabbameinsforvörnum, vísindastarfi og stuðningi við sjúklinga og aðstandendur. Félagið hefur átt frumkvæði að veigamiklum verkefnum sem sum hafa síðar færst til opinberra stofnana eftir að hafa sannað gildi sitt sem sjálfsagður hlutur í samfélaginu. Þar má til dæmis nefna krabbameinsskimanir og líknarþjónustu í heimahúsum.

Krabbameinsfélagið er að undanskildum ca 5% rekstrarfjár, alfarið rekið fyrir söfnunarfé, styrki frá almenningi og fyrirtækjum í landinu. Sama gildir um aðildarfélög þess, sem eru 27, bæði svæðafélög um allt land og félög um ákveðin krabbamein eða aldurshópa. Allt starf félagsins og aðildarfélaganna er til almannaheilla og því skýtur skökku við að greiddar séu stórar fjárhæðir í virðisaukaskatt.

Í ljósi mikilvægis Krabbameinsfélagsins er brýnt að rekstrar- og skattaumhverfi félagsins sé ekki íþyngjandi.

Þessi áskorun hefur það að markmiði að létta rekstur Krabbameinsfélagsins og aðildarfélaga til þess að þau geti sinnt sínu mikilvæga almannaheillahlutverki enn betur.

Útfærslan gæti verið sú að félagið greiddi virðisaukaskatt en fengi hann endurgreiddan.