Beint í efni
Mottumarshlaup

Mottu­mars­hlaupið 2026

Mottumarshlaupið fór fram í fyrsta skipti árið 2024 og hefur þátttaka farið fram úr björtustu vonum síðustu ár. Hlaupið, sem er FRÍ vottað, verður haldið í þriðja sinn þann 19. mars næstkomandi.

Dagskráin hefst kl. 17:30 með léttri upphitun og þátttakendur koma sér í rétta gírinn fyrir hlaupið sem verður ræst kl. 18:00. Hlaupið hefst og lýkur við Fagralund í Kópavogi og liggur hlaupaleiðin um Fossvogsdalinn. Boðið er upp á 5 km löglega mælda braut, með tímatöku, allt eftir getu hvers og eins.

Skráning og nánari upplýsingar


Skráningargjald er 5.000 krónur fyrir 12 ára og eldri (Mottumarssokkar fylgja með) og 1.500 krónur fyrir börn 11 ára og yngri (Mottumarsbuff fylgir með).

Hlaupagögn verða afhent frá 2. mars hjá Krabbameinsfélaginu, Skógarhlíð 8 mánudaga – fimmtudaga á milli kl. 09:00 – 16:00  og á föstudögum á milli 09:00 – 14:00.

Dagskrá á hlaupdag

  • 17:00 Afhending gagna í Fagralundi hefst, hægt að sækja gögn í Skógarhlíð 8 til kl. 16:00.
  • 17:30 Upphitun hefst - Elisabeth og Heiða frá Power Move Studio
  • 18:00 Mottumarshlaupið ræst!
  • 19:10 Tímatöku lýkur

Að loknu hlaupi verður boðið upp á ávaxtabox frá Bönönum og Powerade-drykk frá CCEP, einnig ætlar Kópavogsbær að bjóða hlaupurum í sund í Salalaug og Kópavogslaug, gegn því að sýna hlaupanúmerin.

Hlaupastjóri: Sigurður H. Sigurðsson

Vefverslun

Í vefverslun félagsins er hægt að kaupa fallegar vörur til gjafa eða bara fyrir sig. Um leið styrkir þú baráttuna gegn krabbameinum.