Minning - Ásdís Káradóttir
Í dag fer fram útför Ásdísar Káradóttur hjúkrunarfræðings, sem var einn af fyrstu starfsmönnum félagsins við stuðning og ráðgjöf. Ásdís átti frumkvæði að mörgum verkefnum hjá félaginu sem öll eiga það sameiginlegt að hjálpa fólki að ná aftur jafnvægi með og eftir krabbamein.
Eftir að Ásdís fékk sjálf krabbamein lærði hún bókmenntafræði. Það er við hæfi að birta hér esseyju sem hún skrifaði í Ritið, tímarit hugvísindastofnunar „Hverjum klukkan glymur. Hún glymur þér.“
Við hjá Krabbameinsfélaginu minnumst Ásdísar með mikilli hlýju og þökk og vottum fjölskyldu hennar okkar innilegustu samúð.
